HANV2MN03 - Málmsmíði

Í áfanganum munu nemendur vinna enn frekar með þær aðferðir sem þeir lærðu í HANV1SG03. Unnin verða ákveðin verkefni sem dýpka færni, þekkingu og reynslu í meðferð fjölbreyttra efna eins og fínmálma, beina, horna og viðartegunda. Nemendur vinna með hugmynd að fullunnu verki og sjá hana þróast í veruleika. Lögð er áhersla á skapandi, vönduð og sjálfstæð vinnubrögð.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu tegundum fínmálma
  • einfaldri mótagerð
  • kveikingu og bræðslu málma
  • verkfæra og tækjanotkun í málmsmíði
  • ferli frá hugmynd að fullunnu verki
  • mikilvægi þess að sýna öguð og vönduð vinnubrögð í handverki
  • umhverfismennt og endurnýtingu efna

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota vinnubók/skissubók og að skrá hugmyndir sínar niður
  • beita sjálfstæðum vinnubrögðum og að vera vandvirkur í verkefnavinnu
  • skipuleggja eigið vinnuferli og gera uppdrætti/skissur að verkefni
  • setja fram hugmyndir sínar á munnlegan hátt og ræða þær opinskátt
  • vinna með ýmis náttúruefni og endurnýtanleg efni í listsköpun

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta sér hæfni sína í listræna vinnu og sköpun
  • sýna frumkvæði í verkefnavinnu og verkefnavali
  • vinna með hugmyndir sínar á persónulegan hátt og sýna sjálfstæði
  • nýta sér hversdagslega hluti í umhverfinu og nota þá í listsköpun
  • beita gagnrýnni og skapandi hugsun og sýna áræðni og frumleika við lausnir vinnu sinnar
  • vinna með efni úr nánasta umhverfi
  • þroska færni sína og skilning á list og/eða hönnun
  • vera sjálfbær og tileinka sér endurnýtanleg efni í listsköpun