FÉLA3ST05 - Stjórnmálafræði

Áhersla er lögð á að nemendur öðlist skilning á helstu hugtökum og hugmyndafræði greinarinnar. Fjallað er um lýðræði, einkenni þess og forsendur. Stiklað er á stóru í þróun íslenskrar stjórnmálasögu til dagsins í dag og imprað á sérstæði hvers tímabils. Mismunandi stjórnmálastefnur verða kynntar og nemendur læra hvernig túlka má stjórnmálakerfi og stjórnmálaþátttöku út frá mismunandi kenningum með megináherslu á Ísland. Nemendum verða kynnt helstu hugtök alþjóðastjórnmála, þar á meðal, hugtökin um smáríki og stór ríki. Kynnt verða helstu pólitísku alþjóðasamtök og fjallað verður lítillega um alþjóðavæðingu, einkenni hennar og möguleg áhrif á stjórnmál framtíðarinnar.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • aðferðum og viðfangsefnum stjórnmálafræðinnar
  • megin hugtökum og kenningum stjórnmálafræðinnar
  • mismunandi hugmyndafræðilegum stjórnmálastefnum
  • íslensku stjórnkerfi og stjórnmálasögu landsins.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • leggja sjálfstætt mat á stefnur og átakaefni í stjórnmálum
  • beita stjórnmálafræðilegum kenningum til að skoða samfélagsleg málefni
  • fjalla um og bera saman kenningar
  • ræða um viðfangsefni stjórnmála.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta myndað sér skoðanir sem byggjast á gagnrýnni hugsun og tekið þátt í umræðum um stjórnmál
  • tjá sig skipulega og gagnrýnið um einstaka efnisþætti
  • afla sér upplýsinga um stjórnmál, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér
  • beita öguðum vinnubrögðum, tekið ábyrgð á námi og unnið í samvinnu við aðra
  • taka virkan þátt í borgaralegu samfélagi.