Afbrotafræði er ein af undirgreinum félagsfræðinnar og styðst við aðferðir félagsvísinda til rannsókna á afbrotum og samfélagslegum viðbrögðum. Í þessum áfanga er farið í sjónarhorn og viðfangsefni afbrotafræðinnar. Skoðaðar verða mismunandi tegundir afbrota og afleiðingar þeirra. Unnið verður með spurningar eins og: Hvað eru afbrot? Eru sum afbrot verri en önnur? Af hverju fremur fólk afbrot? Er ástæða til að herða refsingar við afbrotum. Umfjöllun um afbrot, afbrotamenn og refsingar endurspegla siðferðishugmyndir og þjóðafélagsviðhorf. Því er lögð áhersla á að nemendur fjalli á gagnrýninn hátt um álitamál er tengjast fráviks og afbrotahegðun og viðbrögðum samfélagsins við þeim.
Þekkingarviðmið
- samstöðu-, samskipta- og átakasjónarhornum afbrotafræðinnar
- helstu hugtökum afbrotafræðinnar, s.s. frávik, stimplun og félagslegt taumhald
- helstu tegundum frávika og afbrota
- aðferðum sem samfélög beita og hafa beitt til að taka á afbrotum
- sérstöðu afbrotafræðinnar og skyldleika hennar við aðrar greinar félagsvísinda
Leikniviðmið
- afla upplýsinga um frávik og afbrot og viðbrögðum samfélagsins, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
- beita helstu hugtökum og kenningum afbrotafræðinnar
- greina mismunandi tegundir afbrota út frá ólíkum sjónarhornum
- nota fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli
Hæfnisviðmið
- geta lagt mat á upplýsingar um frávik, afbrot og viðbrögð samfélagsins við afbrotum
- tengja umfjöllun fjölmiðla um afbrot við sjónarhorn afbrotafræðinnar (hugtök og kenningar)
- geta tjáð sig í ræðu og riti um samfélagsleg álitamál er tengjast afbrotum og viðbrögðum samfélagins við þeim
- vita hvað felst í fræðilegum vinnubrögðum, kunna að leita að heimildum, meta gæði þeirra og vísa rétt í þær