ENSS1MM02 - Matur og matarmenning
Meginstef áfangans er matur og matarmenning. Með verkefnavinnu vinna nemendur að þema tengdu mat, matarmenningu, uppskriftum og uppruna fæðunnar. Nemendur læra að lesa uppskriftir á ensku ásamt því að lesa texta og horfa á myndir tengdar þemanu.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- orðaforða í tengslum við efni áfangans
- algengum orðum og orðasamböndum
- eldhústengdum orðaforða
- lestri uppskrifta á ensku
- munn- og skriflegum fyrirmælum á ensku
- mismunandi menningarheimum.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja texta í gegnum hlustun, ritun og samtöl og vinna verkefni tengd honum
- byggja upp og bæta við orðaforða út frá áhugamáli
- lesa fjölbreytta texta tengda viðfangsefninu
- halda stutta kynningu fyrir samnemendur og/eða kennara
- leita uppi og finna afmarkaðar upplýsingar úr texta og myndmáli.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- túlka megininnhald lesinna texta
- vinna með texta á fjölbreyttan hátt
- beita aðferðum við að efla orðaforða sinn
- auka sjálfstraust og trú á eigin getu við að skilja og tjá sig á ensku
- nýta sér læsi í víðu samhengi.