ENSS1LS02 - Líkaminn og skynfæri
Þessi áfangi leggur áherslu á að nemendur læri orðaforða á ensku í tengslum við líkamann og þá sérstaklega skynfærin. Með verkefnavinnu og tilraunum velta nemendur fyrir sér mikilvægi skynfæra og læra á sama tíma að tjá sig um eigin líðan og líkamlegt heilbrigði.
Þekkingarviðmið
- orðaforða í tengslum við efni áfangans
- mikilvægi þess að geta bjargað sér á ensku þegar um er að ræða heilsu og heilbrigði
- lestri texta sem nýtast í daglegu lífi
- upplýsingatækni sem nýtist í tungumálanámi.
Leikniviðmið
- lesa og skilja texta og vinna verkefni tengd honum
- svara spurningum um daglegt líf og líðan
- halda kynningu fyrir samnemendur og/eða kennara
- leita uppi og finna afmarkaðar upplýsingar úr texta og myndmáli
- stafsetja á réttan hátt algeng orð á ensku
- beita viðeigandi hjálpargögnum við úrvinnslu ýmiskonar verkefna.
Hæfnisviðmið
- túlka megininnhald lesinna texta
- beita virkri hlustun til að skilja inntak samræðna sem eiga sér stað í kennslustund
- nota orðaforða og þekkingu í ensku við mismunandi aðstæður
- nýta orðaforðann sem áfanginn byggir á
- auka sjálfstraust og trú á eigin getu við að skilja og tjá sig á ensku
- nýta sér læsi í víðu samhengi.