ENSS1ÁT02 - Áhugamál og tómstundir
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur geti tjáð sig um sitt daglega líf á ensku, fjallað um áhugamál sín og hugðarefni. Vinnuferlið miðast við að efla færni og sjálfstæði til að afla sér upplýsinga á ensku um mismunandi áhugamál og tómstundir. Með verkefnavinnu æfa nemendur sig í að tjá sig munnlega og skriflega um áhugamál.
Þekkingarviðmið
- orðaforða í tengslum við áhugamál sitt
- orðaforða sem tengist daglegu lífi og athöfnum
- ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
- kostum þess að vera vel læs á enska tungu þegar kemur að upplýsingaöflun.
Leikniviðmið
- taka þátt í og halda uppi samræðum
- skilja texta við hæfi og vinna verkefni tengd honum
- halda kynningu fyrir samnemendur og/eða kennara
- leita uppi og finna afmarkaðar upplýsingar úr texta og myndmáli
- stafsetja á réttan hátt algeng orð á ensku.
Hæfnisviðmið
- hlusta á og skilja enskan texta
- geta ritað skilaboð á enskri tungu varðandi áhugamál sín
- beita virkri hlustun til að skilja inntak samræðna sem eiga sér stað í kennslustund
- nota orðaforða og þekkingu í ensku við mismunandi aðstæður
- nýta sér læsi í víðu samhengi