ENSK3MB05 - Bókmenntir, menning og ritun

Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur vinni með fjölbreyttari og flóknari bókmenntatexta en áður. Þeir halda áfram að tileinka sér grunnorðaforða vísinda og fræða, tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Nemendur vinna áfram að því að kynnast hinum margbreytilegu menningarheimum landa þar sem enska er móðurmál og nemendur afla sér þekkingar um venjur og siði þessara landa. Fjallað verður bæði um breskt og bandarískt samfélag, venjur og siði. Í tengslum við það verður unnið með hin ýmsu bókmenntaverk, kvikmyndir, heimildamyndir o.fl. sem túlkað verður út frá menningarlegu samhengi. Nemendur vinna í auknum mæli sjálfstætt að viðameiri verkefnum, svo sem þematengdu efni o.fl., sem felur í sér öflun upplýsinga, notkun heimilda og tilvísanakerfisins APA. Áfram er lagður grunnur að lýðræðislegri hugsun þar sem nemendur notast við sjálfsmat og jafningjamat í námi.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • orðaforða í ræðu og riti sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi
  • helstu menningarsvæðum þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða fyrsta mál
  • ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta menninguna í þeim löndum þar sem tungumálið er notað
  • sögu, þjóðfélagsfræði og menningu á helstu málsvæðum enskunnar.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa sér til fræðslu og/eða ánægju texta sem gera miklar kröfur til lesendans, bæði hvað varðar orðaforða og uppbyggingu
  • greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í texta
  • nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni fræðilegs og menningarlegs eðlis
  • átta sig á mismunandi málsniði og stíl í töluðu máli og undirliggjandi merkingu, viðhorfum og tilgangi þess sem talar.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • beita málinu af lipurð og kunnáttu til þess að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um persónuleg, menningarleg, félagsleg og fjölmenningarleg efni
  • flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinagerð, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt nokkuð nákvæmlega með dæmum og bregðast við fyrirspurnum
  • lýsa skýrt og greinilega flóknum hlutum eða ferlum á sviði sem þeir hafa kynnt sér
  • skrifa texta með röksemdarfærslu þar sem fram koma rök með og á móti og þau eru vegin og metin.