Hér gefst nemendum tækifæri á að bæta sig í akademískum undirbúningi fyrir frekara nám. Í þessum áfanga verður lögð áhersla á að nemendur bæta við sig vísindatengdum orðaforða þeirri braut sem þeir eru á. Það er markvisst farið í að skoða greinar og annað efni sem tengist brautum. Nemendur gefst einnig tækifæri á að bæta sérsvið að eigin vali. Mikil áhersla er á sjálfstæð vinnubrögð. Lögð verður meiri áhersla á tal og flutning í töluðu máli. Þar að auki verða nemendur þjálfaðir í ritun með ýmsum verkefnum sem tengjast sérhæfingu nemenda.
Þekkingarviðmið
- þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar í námi á háskólastigi
- rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. um inngang með efnisyrðingu, meginmál með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag
- mismunandi gerðum fræðitexta af ólíkum sviðum
Leikniviðmið
- lesa fjölbreyttar gerðir texta, bæði fræðilega og bókmenntalega
- lesa sér til fræðslu sem gera miklar kröfur til lesandans, bæði hvað varðar orðaforða og uppbyggingu
- greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í texta
- nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni menningarlegs eðlis
- beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefnis
- tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
- skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni
Hæfnisviðmið
- beita málinu af lipurð og kunnáttu til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um persónuleg, menningarleg, félagsleg og fjölmenningarleg efni
- flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt nokkuð nákvæmlega með dæmum og bregðast við fyrirspurnum
- skrifa texta með röksemdafærslu þar sem fram koma rök með og á móti og þau eru vegin og metin
- lýsa skýrt og greinilega flóknum hlutum eða ferlum á sviði sem hann þekkir vel
- afla sér fræðilegra heimilda á gagnrýninn hátt
- umrita og gera útdrátt úr fræðigreinum
- nýta nýjan orðaforða í ræðu og riti
- skrifa texta sem uppfyllir akademískar kröfur um orðaforða og uppbyggingu