ENSK3BP05 - Bannaðar bókmenntir og poppkúltúr

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • áhrifum samtímans á túlkun bókmenntaverka og afleiddum kvikmyndum
  • helstu hugtökum í bókmenntafræði
  • hvaða áhrif poppkúltúr hefur á neysluvenjur fólks er kemur að bókmenntum og kvikmyndum
  • ólíkum viðhorfum og samfélagsgildum fyrri alda og hvernig þau hafa breyst í tímans rás
  • hvaða bókmenntaverk eru á bannlista víðsvegar í enskumælandi löndum og hvers vegna
  • enskri tungu og þróun hennar innan ólíkra samfélaga og landa. Sérstök áhersla á orðaforðabreytingar í kjölfar samfélagslegra umbyltinga

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa sér til fræðslu og ánægju texta sem gera miklar kröfur til lesandans, ýmist hvað varðar orðaforða og uppbyggingu eða myndmál og stílbrögð í bókmenntaverkum
  • beita tungumálinu af lipurð og geta notað orðaforða sem er viðeigandi í hvert sinn
  • greina mismunandi málsnið og stíl í rituðu máli, og gera sér grein fyrir undirliggjandi merkingu
  • greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í bókmenntatextum og afleiddum kvikmyndum

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • leggja gagnrýnið mat á texta og listrænt gildi hans
  • átta sig á gagnrýni og túlkun höfunda bóka eða kvikmynda
  • geti flutt vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð, dregið fram aðalatriði og rökstutt mál sitt nokkuð nákvæmlega með dæmum og brugðist við fyrirspurnum
  • geti skrifað texta með röksemdafærslu og tilvísunum þar sem rök koma fram með og á móti og þau vegin og metin
  • geta túlkað út frá menningarlegu sjónarhorni gagnrýni á þjóðfélög og umræðu þá sem fer fram í hverju verkefni fyrir sig
  • nýta sér umræður og rökræður um efni menningarlegs eðlis
  • átta sig á mismunandi málsniði og stíl í töluðu máli og undirliggjandi merkingu, viðhorfum og tilgangi þess sem talar