ENSK2TM05 - Skapandi skrif, tjáning og menning

Áhersla er lögð á að nemendur verði vel læsir á flóknari texta en áður. Þeir verða þjálfaðir í að dýpka þekkingu sína á grunnorðaforða, tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Nemendur kynnast margbreytilegum menningarheimum landa þar sem enska er móðurmál þar sem nemendur afla sér þekkingar um venjur og siði þessara landa. Í tengslum við það verður unnið með hin ýmsu bókmenntaverk, kvikmyndir, heimildamyndir o.fl. sem túlkað verður út frá menningarlegu samhengi. Nemendur vinna í auknum mæli sjálfstætt að stærri ritunarverkefnum og viðameiri verkefnum svo sem kynningum á þematengdu efni sem fela í sér öflun upplýsinga. Unnið er markvisst að því að efla sjálfstæði nemenda í námi. Lagður er grunnur að lýðræðislegri hugsun þar sem nemendur notast við sjálfsmat og jafningjamat í námi. 

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu menningarsvæðum þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða fyrsta mál
  • ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta menninguna í þeim löndum þar sem tungumálið er notað
  • ólíkum framburði út frá málsvæðum þar sem tungumálið er notað
  • halda áfram að bæta við sig orðaforða 
  • rithefðum sem eiga við flóknari textasmíð 
  • mismunandi afstöðu og túlkun bókmenntahöfunda og dýpri merkingu texta.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa fjölbreyttar gerðir texta, bæði fræðilega og bókmenntalega
  • beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefnis
  • tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
  • tjá sig skriflega bæði á formlegan og óformlegan hátt.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja daglegt mál, fjölmiðlaefni, inntak erinda, fræðigreinar og annað flóknara efni
  • taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og bregðast við
  • tjá sig skýrt, lipurlega og blaðalaust fyrir áheyrendum um sérvalið efni sem hann hefur kynnt sér
  • skrifa formlegan og óformlegan texta og beita rithefðum sem við eiga í textasmíð
  • nýta nýjan orðaforða í ræðu og riti.