ENSK2OT05 - Orðaforði, tjáning og ritun

Í þessum byrjendaáfanga í ensku er lögð áhersla á að nemendur verði læsir á flóknari texta en áður. Þeir þjálfast í að tileinka sér grunnorðaforða, tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Þau þjálfa sig einnig í því að tjá sig um land sitt og þjóð. Nemendur kynnast einnig menningarheimum enskumælandi landa og lesa bókmenntaverk. Nemendur vinna að fjölbreyttum verkefnum yfir önnina. Þar að auki vinna nemendur sjálfstætt að viðameiri verkefnum svo sem kynningum og stærri ritunarverkefnum. Lagður er grunnur að lýðræðislegri hugsun þar sem nemendur notast við sjálfsmat og jafningjamat í námi.

Þekkingarviðmið

  • Íslandi og íslenskri menningu frá sjónarhorni ferðalanga
  • ólíkum viðhorfum og menningu þar sem tungumálið er notað 
  • grunnorðaforða og helstu málfræðiatriðum og grunnflokkum 
  • ritun stuttra texta
  • grunntjáningu á ensku í fjölbreyttum verkefnum
  • hlustun í fjölbreyttu formi
  • mismunandi afstöðu og túlkun bókmenntahöfunda og dýpri merkingu texta

Leikniviðmið

  • lesa fjölbreyttar gerðir texta, bæði fræðilega og bókmenntalega
  • beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefnis
  • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt og áheyrilega
  • tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
  • tjá sig skriflega bæði á formlegan og óformlegan hátt.

Hæfnisviðmið

  • skilja daglegt mál, fjölmiðlaefni, inntak erinda, fræðigreinar og skáldskap
  • taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og bregðast við gagnrökum á viðeigandi hátt
  • tjá skýrt, lipurlega og blaðalaust fyrir áheyrendum um sérvalið efni sem hann hefur kynnt sér
  • skrifa formlegan og óformlegan texta og beita rithefðum sem eiga við í textasmíð
  • nýta nýjan orðaforða í ræðu og riti.