EÐLI3SH05 - Sveiflufræði og skákast

Í þessum áfanga er farið yfir grunnþætti í tengslum við skákast, sveifluhreyfingar, ljósgeislafræði, þrýsting, gaslögmál og varmafræði. Áhersla verður á skilning nemandans á efninu og geta tengt það við raunveruleg vandamál.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hreyfingu og hröðun hluta í skákasti
  • hegðun ljóss
  • einföldum sveiflu- og bylgjuhreyfingum
  • þrýstingi í vökva og gasi
  • gaslögmálinu

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • reikna hreyfingu hluta í fleti, t.d. skáköst
  • reikna hreyfingu lóðs í gormi
  • reikna út brotstuðla og stefubreytingar fyrir ljós
  • reikna út þrýsting í vökva og gasi
  • reikna út eiginleika gas með gaslögmálinu

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
  • bera ábyrgð á eigin námsframvindu
  • vinna í hóp til þess að leysa raunveruleg vandamál með eðlisfræði