DANS2TL05 - Menning og málnotkun

Í áfanganum er lögð megináhersla á þjálfun í tjáningu, bæði munnlegri og ritaðri. Lögð er áhersla á að nemendur séu færir um að tjá hugsun sína skýrt og geti rökstutt mál sitt og beitt útskýringum eða öðrum aðferðum ef orðaforða  þrýtur. Lesnir eru fjölbreyttir textar og nemendur kynnast danskri menningu á sem fjölbreyttastan hátt og jafnframt er unnið að því að nemendur verði læsir á flóknari texta en áður. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð, að nemendur beri ábyrgð á eigin námsframvindu og séu meðvitaðir um mismunandi aðferðir til að tileinka sér tungumál.  

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar, bæði munnlega og skriflega
  • rithefðum í textasmíð og meðferð heimilda
  • mismunandi afstöðu og túlkun bókmenntahöfunda og dýpri merkingu texta
  • notkun hjálpargagna, s.s. orðabóka, leiðréttingaforrita auk ýmissa hjálpargagna á netinu
  • málkerfinu til markvissarar notkunar, bæði munnlega og skriflega

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • að lesa mismunandi textagerðir; blaðagreinar, sérhæfða texta og bókmenntatexta
  • beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta og viðfangsefnis
  • tjá sig munnlega á máli sem hæfir aðstæðum hverju sinni
  • tjá sig skriflega bæði á formlegan og óformlegan hátt
  • nota reglur málkerfisins.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja almennt talað mál, fjölmiðlaefni, fræðigreinar og annað flóknara efni
  • halda uppi samræðum og tjá sig um eigin hugmyndir og skoðanir og geta rökstutt mál sitt
  • skrifa mismunandi texta og beita þeim rithefðum sem við eiga í textasmíð
  • nýta nýjan orðaforða bæði munnlega og skriflega
  • auka meðvitund um eigin færni í tungumálinu og eigin leiðir til að tileinka sér málið.