DANS2LT05 - Túlkun og tjáning
Í áfanganum er megináhersla á bókmenntir en jafnframt er áfram lögð áhersla á munnlega og skriflega tjáningu . Lögð er áhersla á að nemendur geti beitt meginreglum danskrar málfræði, hljóðfræði og setingarfræði bæði munnlega og skriflega. Við leggjum einnig áherslu á að nemendur séu meðvitaðir um notkun mismunandi stílbragða við ritun texta, að nemendur geti lesið flóknari texta en áður og geti áttað sig á dýpri merkingu þeirra. Nemendur kynnast helstu hugtökum við bókmenntagreiningu og fá þjálfun í að skrifa bókmenntaritgerðir. Mikil áhersla er sem fyrr lögð á að nemendur beri ábyrgð á eigin námsframvindu og sýni sjálfstæð vinnubrögð.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- menningu, hefðum, viðhorfum og gildum í dönsku þjóðfélagi
- uppruna dönskunnar og skyldleika við íslensku
- helstu hugtökum í bókmenntagreiningu
- uppbyggingu ritgerða, meðferð heimilda og helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls, s.s. greinamerkjasetningu.
- orðaforða sem hæfir markmiðum áfangans.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa sér til ánægju eða upplýsinga texta sem gera miklar kröfur til lesandans, ýmist hvað varðar orðaforða, túlkun eða stílbrögð.
- beita mismunandi lestraraðferðum s.s. leitarlestri, yfirlitslestri, hraðlestri og námkvæmislestri
- nota tungumálið í samræðum og til frásagnar og beita málfari við hæfi
- beita ritmáli í mismunandi tilgangi, bæði formlegum og óformlegum
- vinna með bókmenntatexta á fjölbreyttan hátt
- nota meginreglur í málfræði, hljóðfræði og setningarfræði
- skilja almennt talað mál og þekkja algengustu orðasambönd sem einkenna talað mál.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja almennt talað mál, fjölmiðlaefni, fræðigreinar og annað flóknara efni hvort sem hann þekkir umræðuefnið eða ekki
- taka þátt í skoðanaskiptum og færa rök fyrir sínu máli, geta brugðist við óvæntum spurningum og geta tjáð sig á skýran og áheyrilegan hátt
- tileinka sér efni ritaðs texta af ýmsu tagi, geta lesið á milli línanna og áttað sig á dýpri merkingu textans og lagt gagnrýnið mat á hann
- beita rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. um inngang með efnisyrðingu, meginmál með afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag
- skrifa skýran og vel uppbyggðan texta sem tekur mið af lesandanum
- auka meðvitund um eigin færni í tungumálinu og eigin leiðir til að tileinka sér málið.