BRID1BY03 - Bridds - byrjunaráfangi
Í þessum grunnáfanga í bridds er farið í alla helstu grunnþætti spilsins. Nemendur byrja á því að læra einfaldaða útgáfu sem nefnist míníbridds þar sem stigagjöf, spilamat, úrspilun og vörn eru í forgrunni. Í framhaldi af því er farið að spila hefbundið bridds með notkun sagnkerfis. Í þessum grunnáfanga læra nemendur Standard sagnkerfið í nokkuð einfaldri mynd. Í kennslustundum er blandað saman æfingum og spilamennsku. Töluvert er spilað á internetinu og skrá nemendur sig á BridgeBase þar sem hægt er að setja upp ákveðna tegund af spilahöndum og greina síðan spilin í hópumræðum á eftir. Í lok áfangans er stefnt að því að nemendur spili annað hvort í byrjendamóti eða einhvers konar keppni.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Mínibridds
- grunnreglum í Bridds
- mismunandi stigakerfum
- standard sagnkerfinu
- notkun sagnabakka og hegðunarreglum við spilaborðið
- notkun briddsforrita á netinu og hegðunarreglum í netheimum
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- meta styrk spila og tjá þann styrk með sagnkerfi
- vinna með spilafélaga til að ná réttum samningi
- gera spilaáætlun sem sagnhafi til að ná hámarksfjölda slaga
- vinna með spilafélaga í vörn með leyfilegum merkingum
- reikna út stig á mismunandi formi
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- sýna samvinnu og umburðarlyndi með spilafélögum
- vinna skipulega að settum markmiðum
- þróa sinn eigin spilastíl
- þróa hæfni í áætlunargerð
- spila bridds sér til ánægju og yndisauka