Nemendafélag (NFFMOS) er starfsrækt í skólanum en umsjón þess er í höndum nemendaráðs. Á vorönn eru kosnir fulltrúar í ráðið til eins árs í senn og hafa allir nemendur skólans jöfn tækifæri til að bjóða sig fram. Markmið nemendaráðs er að bjóða upp á skemmtilega og fjölbreytta viðburði og stuðla að góðum anda í skólanum. Nemendur skólans greiða félagsgjöld í NFFMOS samhliða skráningargjöldum sínum í skólann á hverri önn, að sjálfsögðu er þátttaka valfrjáls en vart þarf að taka það fram að ávinningurinn af því að vera í NFFMOS er ótvíræður. Meðal vinsælla viðburða má nefna: Árshátíð, stórball í samstarfi við önnur nemendafélög, opið draugahús á hrekkjavöku, bræðingur, súrgúrkukeppni og reglulegar bíóferðir!
Það eru margir kostir við að vera með öflugt nemendafélag. Auk þess að halda uppi félagslífi stendur NFFMOS vörð um nemendur í skólanum og er t.d. aðili að SÍF (Samband íslenskra framhaldsskólanema).
Netfang nemendafélagsins er fmosnemo@gmail.com
Nemendafélagið er á Instagram og Tik Tok
Að vera félagi í NFFMOS gefur þér:
- Afslætti á viðburði hjá NFFMOS - sem dæmi er árshátíð (stærsti viðburður ársins) að stórum hluta niðurgreidd.
Möguleika á að bjóða þig fram í nemendaráð.
- Hægt er að segja sig úr nemendafélaginu í eina viku eftir fyrsta skóladag hverrar annar og er það gert með því að senda póst á skrifstofu skólans, fmos@fmos.is
Í stjórn NFFMOS eru formaður, varaformaður (ritari) og gjaldkeri ásamt nýnemafulltrúa. Einnig eru í stjórninni formenn þeirra þriggja nefnda sem starfa innan NFFMOS. Stjórnin hefur yfirumsjón með starfsemi nemendafélagsins og sér um tengsl félagsins við skólann annars vegar og við nemendafélög í öðrum skólum hins vegar.
Nemendaráð FMOS á vorönn 2025 skipa:
- Kristjana Lind Emilsdóttir, formaður. Netfangið hennar er kristjana.lind.emilsdottir@gmail.com
- Adam Ottesen, varaformaður. Netfangið hans er adamottesen00@gmail.com
- Natan Blær Harðarson, gjaldkeri. Netfangið hans er natanblaer@gmail.com
- Elenora Rós Hjaltadóttir, ritari. Netfangið hennar er elenora06@gmail.com
- Rúnar Óli Grétarsson, fulltrúi nýnema. Netfangið hans er runar.oli.gretarsson@gmail.com og
Dagur Björgvin Jónsson, fulltrúi nýnema. Netfangið hans er dagurbjorgvin08@gmail.com
Síðast breytt: 29. janúar 2025