NÁTT3TÖ05 - Náttúrufræði - Vísindi í tölvuleikjum
Í þessum áfanga eru mismunandi þættir vísinda skoðuð í heimi tölvuleikja. Eðlisfræðileg lögmál eru skoðuð nánar ásamt, stjörnufræði, hagfræði, stærðfræði og leikjafræði. Að miklu leyti verður notast við tölvuleikinn EVE Online en nemendur verða geta spilað hann á eigin tölvu.
Þekkingarviðmið
- sambandi staðsetningar, hraða og hröðunar hluta
- grunnhugtökum í hagfræði
- ýmsum stjarnfræðilegum eiginleikum reikistjarna
- grunnhugtökum í leikjafræði
- ýmsum eðlisfræðilegum fyrirbærum
Leikniviðmið
- nota excel til að finna bestun lausnamengis
- nota þekkingu í stærðfræði í bestun lausnamengis
- nota þekkingu í eðlisfræði í bestun lausnamengis
- nota þekkingu í líkindafræði í bestun lausnamengis
Hæfnisviðmið
- sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
- bera ábyrgð á eigin námsframvindu
- vinna í hóp til þess að leysa raunveruleg vandamál með eðlisfræði og stærðfræði