LISF2HL05 - Listsköpun - listform, heimsálfur og menning
Áfanginn miðar að því að nemendur skoði listgreinar frá ólíkum heimshornum. Nemendur fá innsýn í listsköpun frá ólíkum menningarheimum. Þeir skoða hvernig þróun listsköpunar hefur fært okkur til póstmódernisma. Rýnt verður áfram í listfomin þrjú: sjónlist, leiklist og tónlist. Hafðar verða umræður og vangaveltur um áhrif stjórnmála, átaka, tækni, tísku, félags- og menningarlegs samhengis á stílbrigði hverrar heimsálfu fyrir sig. Einnig verða teknir fyrir þrír íslenskir listamenn í hverri viku. Lögð er áhersla á að nemandinn tileinki sér gagnrýna og skapandi lausnarhugsun og öðlist með því hæfni í að miðla eigin hugmyndum og skoðunum. Að hann opni sig, leiti út fyrir þægindarammann í tilraunavinnu sinni og þar með öðlist óheftara frelsi til sköpunar og tjáningar. Námið í áfanganum gerir nemandanum kleift að skilja og meðtaka gildi menningararfsins, hvort sem hann snýr að heimabyggð eða heiminum öllum.
Þekkingarviðmið
- Skapandi lausnaleit í gegnum tilraunavinnu
- Fjölbreytileika efnisnotkunar og úrvinnslu
- Að sjá fleiri og opnari möguleika í vinnuferlinu
- Sjálfum sér, hugsun og verklagi
- Hvernig menning og listir tengjast atvinnusköpun og samfélagsþróun
- Gildi menningararfsins, hvort sem hann snýr að heimabyggð eða heiminum öllum.
Leikniviðmið
- Virkja hugmyndaflugið og þar með sköpunarkraftinn
- Sjá fleiri og opnari möguleika í vinnuferlinu
- Tjá sig um list úr ólíkri menningu
- Tjá sig á ólíkan hátt með sköpun í gegnum ýmsa miðla
- Njóta lista og skapandi starfs á margvíslegu formi
- Skiptast á skoðunum og átt uppbyggileg samskipti við annað fólk
- Hafa skilning á fjölbreytileika efnisnotkunar og úrvinnslu.
Hæfnisviðmið
- Beita skapandi lausnarhugsun, bæði í leik og starfi
- Sýna frumkvæði og skapandi hugsun
- Greina ný tækifæri í umhverfinu
- Nota fjölbreyttar aðferðir við að leysa viðfangsefni
- Horfa á sköpun, myndlist og hönnun með opnum hug.